Enginn hefur boðið í rúmlega 25% þess ostkvóta sem hefur verið í boði í af 1.400 tonnum frá árinu 2009 eða sem svarar til 360 tonna. Fram kemur í Fréttablaðinu í dag að fyrirtæki hafi getað boðið í tollkvótana og þeim úthlutað til hæstbjóðandana. Stærsti innflytjandinn er Innnes ehf sem hefur flutt inn tæp 330 tonn, Sólstjarnan hefur flutt inn 200 tonn og MS tæp 160 tonn. Þá nemur innflutningur Haga 130 tonnum.

Guðni Ágústsson, framkvæmdastjóri Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði, segir í samtali við blaðið að hlutdeild Mjólkursamsölunnar í samanlögðum ostakvóta á síðastliðnum fimm árum hafi aðeins verið 11 prósent. „Tölurnar sýna að bændafyrirtækin halda ekki uppi verði á innfluttum ostum,“ segir hann. Af þessum tölum segir Guðni að megi ráða að það sé rangt sem haldið sé fram í fjölmiðlum, að að MS sé ráðandi í innflutningi á ostum.