Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 312 stig í maí og lækkaði um 0,7% frá fyrra mánuði samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamati ríkisins).

Vísitalan lækkar þannig tíunda mánuðinn í röð en síðustu tvo mánuði, þ.e. í mars og apríl hefur vísitalan tekið nokkra dýfu niður á við. Í mars lækkaði vísitalan um 3,8% sem þá var mesta lækkun milli mánaða í yfir 15 ár eða frá því að byrjar var að reikna vísitölu íbúðaverðs.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár.

Þar sést hvernig íbúðaverð hefur lækkað nánast samfellt s.l. 15 mánuði en vísitala íbúðaverðs náði hámarki fyrir tæpu hálfu öðru ári, í janúar 2008, þegar hún mældist 357,4 stig og hefur vísitalan því lækkað um tæp 13% síðan þá.

Þá hefur íbúðaverð nú lækkað stanslaust frá því í júlí í fyrra en frá því í janúar 2008 hefur íbúðaverð aðeins hækkað tvisvar milli mánaða.

Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitala íbúðaverðs um 7%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 10,3% og lækkun síðastliðna 12 mánuði nemur 10,5%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.