Alls fóru um 18 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð í febrúarmánuði síðastliðnum en í febrúarmánuði árið 2008 voru þeir tvö þúsund fleiri eða um 20 þúsund.

Erlendum gestum fækkar því um 10% milli ára.

Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu en í talningu stofnunarinnar er hægt að sjá skiptingu ferðamanna eftir þjóðerni og hvernig hún breytist eftir mánuðum.

Fram kemur að frá áramótum hafa tæplega 40 þúsund erlendir gestir farið frá landinu, 6% færri en árinu áður. Meira en helmingsfækkun er í brottförum Íslendinga í febrúar en í ár fóru um 15 þúsund frá landinu en voru í sama mánuði árinu áður ríflega 32 þúsund.

Þegar litið er til einstakra markaðssvæða má sjá fækkun frá öllum mörkuðum nema N-Ameríku, en gestum þaðan fjölgar um 10%. Af Norðurlandaþjóðum fjölgar einungis Dönum.

Sjá nánar á vef Ferðamálastofu.