Icelandair flutti rúmlega 115 þúsund farþega í apríl sl., sem er 48% fjölgun á milli ára en aukninguna má að mestu leyti skýra vegna þeirra tafa sem urðu á flugi í apríl í fyrra þegar gosið hófst í Eyjafjallajökli.

Heildarfjöldi farþega það sem af er ári nemur rúmlega 373 þúsund sem er 22% aukning á milli ára.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group en heildarfjöldi farþega hjá Icelandair á síðasta ári nam tæplega 1,5 milljón, samanborið við tæplega 1,3 milljón farþega árið 2009.

Sætanýting Icelandair í apríl var rúm 79% sem er 10% aukning á milli ára í apríl. Sætanýtingin fyrstu fjóra mánuði ársins nemur 73% og hefur aukist um 5% á milli ára.

Farþegum Flugfélags Íslands fjölgar í fyrsta sinn í langan tíma

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fjölgaði um 28% á milli ára í apríl þegar félagið flutti rúmlega 29 þúsund farþega. Þetta er í fyrsta sinn í 9 mánuði sem farþegum Flugfélags Íslands fjölgar á milli mánaða. Sætanýting félagsins jókst um 3,3% á milli ára í apríl og var um 68%.

Farþegum Flugfélags Íslands hefur þá fjölgað um 3% á milli ára það sem af er þessu ári.

Hótelnýtingin stendur í stað

Nýting flugflota í eigu Icelandair Group jókst á milli ára í apríl eða um 1,5%. Hér er átt við allar vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic. Nýting flugflotans jókst um 1% á milli ára á síðasta ári og hefur aukist um 5,5% á milli ára fyrstu fjóra mánuði þessa árs.

Fraktflug á vegum samstæðunnar jókst um 38% á milli ára í apríl en líkt og í farþegafluginu skýrist aukningin fyrst og fremst af því hversu mikill samdráttur varð í eldgosinu í fyrra. Samdrátturinn í fraktflugi á síðasta ári nam um 4% en aukningin á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs nemur 5% á milli ára.

Þá stóð nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar í stað á milli ára í apríl og stendur jafnframt í stað það sem af nemur þessu ári.