Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman á milli vikna í vikunni, líkt og í síðustu viku.

Þannig nam veltan nú í vikunni 2.092 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 2.244 milljónir króna veltu í síðustu viku og dróst því saman um 7% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta eykst þó lítillega á milli vikna en í þar síðustu viku hafði fjögurra vikna meðalvelta ekki verið hærri frá því í lok síðasta ár (þegar velta á markaði hafði reyndar verið óvenju mikil í desember á síðasta ári). Þannig nemur fjögurra vikna meðalvelta nú 2.284 milljónum króna, samanborið við 2.268 milljónir í vikunni á undan.

Fjögurra vikna meðalvelta  hefur nú hækkað um 140 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur hækkað um 53% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta dregist saman um 32% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta jókst á milli vikna í vikunni eða um 13 milljónir króna, og nemur nú 1.880 milljónum króna. Þá hefur 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri frá því í byrjun febrúar sl.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.619 milljónir króna á viku og hefur aukist um 38% á milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 72 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 84 samninga í vikunni á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 54 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári þannig að fjöldi samninga síðustu mánuði er töluvert yfir meðaltali.

Meðalupphæð á hvern samning hækkaði á milli vikna í þessari viku og nam 29,1 milljónum króna, samanborið við 26,7 milljónir króna í síðustu viku. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 28,7 milljónum króna og hefur því lækkað nokkuð.

Meðaltal síðustu 12 vikna er þó 29,4 milljónir króna.