Hugsanlegt er að fimm verslanir í miðbæ Reykjavíkur verði sektaðar fyrir að virða að vettugi tilmæli og ábendingar Neytendastofu um verðmerkingar.

„Þann 30. september sl. fóru fulltrúar Neytendastofu í  seinni eftirlitsferð í sérverslanir í miðbæ Reykjavíkur. Farið var í þær 17 verslanir sem höfðu fengið áminningu frá Neytendastofu vegna síðustu eftirlitsferðar sem farin var á tímabilinu 12. – 22 ágúst sl. Neytendastofa gerði athugasemdir við að fimm verslanir höfðu ekki komið verðmerkingum í viðunandi horf, en það voru Rammagerðin, Púkinn 101, Kassetta, Couture og Nordic store,“ segir á vef Neytendastofu .

Þar segir jafnframt að í öllum tilfellum hafi verið gerðar athugasemdir við skort á sýnilegum verðmerkingum í sýningargluggum. Tekin verði ákvörðun í framhaldinu hvort beita skuli verslanirnar  sektarákvæðum fyrir að virða að vettugi tilmæli og ábendingar Neytendastofu um úrbót á ástandi verðmerkinga.