Neytendastofa hefur sektað fjögur fyrirtæki á Akureyri vegna ástands verðmerkinga í verslunum þeirra. Þetta kemur fram á vefsíðu stofnunarinnar .

Eftirlit Neytendastofu fólst í því að skoða ástand verðmerkinga í miklum fjölda verslana og sölustaða á Akureyri annars vegar í júlí og hins vegar í desember 2014. Kveður hún ástand verðmerkinga í verslunum á Akureyri hafa batnað verulega á milli eftirlitsferða

Hins vegar hafi nokkrar verslanir ekki sinnt tilmælum Neytendastofu með fullnægjandi hætti og lagði stofnunin því stjórnvaldssektir á fyrirtækin. Þau fyrirtæki sem um ræðir eru N1 Hörgárbraut, Hárkompan, Halldór Ólafsson og Samkaup Strax vegna verslana að Borgarbraut og Byggðavegi.