FL Group hefur keypt fyrir 1.328 milljónir króna í Glitni, að því fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar. Um er að ræða 80.000.000 hluti sem keyptir voru á genginu 16,6 krónur á hlut.

Á sama tíma er tilkynnt um að Redsquare Invest ehf. hafi selt jafn marga hluti og FL Group keypti.

Jón Snorrason, stjórnarmaður í Glitni, og bróðir hans Sturla Snorrason eru eigendur fjárfestingarfélagsins Redsquare Invest.

FL Group og fjárhagslega tengdir aðilar eiga 2.230.426.716 hluti eftir viðskiptin og RedSquare Invest og fjárhagslega tengdir aðilar eiga 397.129.704 hluti eftir viðskiptin.