Íslandsbanki mun í haust flytja höfuðstöðvar sínar í Norðurturninn í Kópavogi frá Kirkjusandi þar sem höfuðstöðvar bankans hafa verið undanfarin 20 ár. Þetta var tilkynnt á stefnufundi starfsmanna Íslandsbanka fyrr í dag.

Með þessari breytingu verður starfsemi höfuðstöðva, sem í dag fer fram á fjórum stöðum, sameinuð undir einu þaki þar sem 650 starfsmenn munu starfa. Í tilkynningu frá bankanum segir að mikil hagkvæmni fylgir sameiningunni en samanlagður fermetrafjöldi höfuðstöðvastarfsemi fer úr 13.900 í 8.600 fermetra í Norðurturninum.

Þar segir einnig að flutningurinn hefur legið fyrir um hríð. Nýtt útibú bankans mun jafnframt opna á 1. hæð Norðurturnsins í nóvember en sú vinna hefur staðið yfir undanfarna mánuði.

Miklar rakaskemmdir hafa fundist í höfuðstöðvum bankans á Kirkjusandi en viðamiklar rannsóknir hafa staðið yfir á húsnæðinu ásamt því að það hefur verið hreinsað.

„Við höfum beðið lengi eftir að geta sameinað alla höfuðstöðvastarfsemi bankans  á einum stað,“ er haft eftir Birnu Einarsdóttur bankastjóra Íslandsbanka í áðurnefndri tilkynningu. „Vegna aðstæðna á Kirkjusandi flýtum við þessum áformum okkar og sjáum mikil tækifæri í hinum nýja höfuðstöðvum. Bankinn vill vera framsýnn í starfsemi sinni og við munum nú, undir einu þaki, geta boðið starfsfólki og viðskiptavinum upp á enn betri þjónustu.“