Fons Eignarhaldsfélag hefur aukið hlut sinn í Teymi fyrir um 381 milljón króna að markaðsvirði, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Um er að ræða 76.525.210 hluti, keypta á genginu 4,98 krónur á hlut.

Fons og fjárhagslega tengdir aðila eiga 353.952.426 hluti í Teymi.

Pétur Már Halldórsson, starfsmaður Fons, situr í stjórn Teymis.