Jan Kristian Forsbom, framkvæmdastjóri hjá Glitni, hefur selt fyrir 14,2 milljónir króna í bankanum, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Um er arð ræða 497.812 hluti, selda á genginu 28,45.

Eftir viðskiptin á hann 5.475.938 hluti. Miðað við sölugengið er verðmæti þessa hlutar 155,8 milljónir króna.