Sigmundur og Medvedev.
Sigmundur og Medvedev.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra fundaði í gær með Dmitry Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, í tengslum við leiðtogafund sem þeir sóttu í Kirkenes í Noregi. Þetta er fyrsti fundur Sigmundar Davíðs á erlendri grund sem forsætisráðherra. Hann bauð Medvedev að sækja Ísland heim þegar kostur gæfist.

Bent er á í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu að Ísland er í hópi EFTA ríkjanna sem nú eru í samningaviðræðum við Rússland um fríverslunarsamning og hvatti forsætisráðherra til þess að samningamenn yrðu hvattir til þess að finna lausnir sem gætu orðið til þess að ljúka þeim viðræðum.

Þá segir að þeir Sigmundur Davíð og Medvedev ræddu m.a. áherslur íslenskra stjórnvalda um aukna þátttöku og samstarf á norðurslóðum af hálfu Íslands. Mikilvægi tvíhliða samskipta Íslands og Rússlands var rætt sérstaklega en um þessar mundir eru 70 ár síðan ríkin hófu stjórnmálasamband, sem hefur staðið með miklum ágætum síðan. Í tilefni af því verður m.a. haldin sýning á verkum Jóhannesar Kjarval í St. Pétursborg síðar á þessu ári. Þá hóf Icelandair nýverið beint flug til sömu borgar, sem auðveldaði enn frekar samskipti borgara, menningartengsl og ferðamennsku. St. Pétursborg er einmitt heimaborg Medvedevs.