Aðalfundur Icelandic Group [ IG ] veitti stjórn félagsins umboð til þess að óska eftir afskráningu af hlutabréfamarkaði.

Enginn fundargestur steig í pontu og tjáði sig um afskráninguna eða mótmælti henni með atkvæði sínu.

Rekstur félagsins hefur gengið erfiðlega síðustu ár. Stjórn félagsins telur að undanfarin ár hafi félagið ekki getað nýtt sér kosti  að vera skráð félag og verðmyndun hefur verið óskilvirk.