Vélstjóra- og málmiðnaðarfélagið og Farmanna- og fiskimannaasamband Íslands segja að það sé fráleitt að nota lágmarkslaun, eða svokallaða kauptryggingu, úr kjarasamningi fiskimanna sem viðmið þegar samið er um kjör þeirra sem starfa á skipum hvalaskoðunarfyrirtækja á Húsavík.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá VM og FFSÍ þar sem undrun er lýst yfir á nýgerðum kjarasamningi stéttarfélagsins Framsýnar á Húsavík vegna starfsmanna hjá hvalaskoðunarfyrirtækjum á staðnum.  VM og FFSÍ fullyrða að við gerð þessa samnings hafi af hálfu Samtaka Atvinnulífsins ekki verið samið fyrir vélstjóra og skipstjórnarmenn.

VM og FFSÍ segja að kauptrygging fiskimanna séu lágmarkslaun sem gripið sé til í reiðuleysi þegar ekkert fiskast. Furðu gegni að hvalskoðunarfyrirtæki sem  að undanförnu hafi fengið gríðarlega fjölmiðlaumfjöllun og lýst þar sem algjörum hvalreka fyrir þjóðfélagið og gróskumesta sprota atvinnulífsins skuli bjóða upp á slík kjör í þeirri gósentíð sem ríkt hefur í þessari ágætu atvinnugrein.

Þá segja VM og FFSÍ að með samningnum sé Framsýn að fara langt niður fyrir þau lágmarkskjör sem félögin telji ásættanleg fyrir skipstjórnarmenn, vélstjóra og reyndar alla áhafnarmeðlimi á þessum skipum.

Ekki hefur tekist að ná samkomulagi milli VM, FFSÍ og SA um störf yfirmanna á hvalaskoðunar- og öðrum fólksflutningaskipum fyrir hönd fyrirtækja í þessum greinum.