Sendiráð Bretlands á Íslandi bendir fyrirtækjum sem lent hafa í vandræðum með samskipti sín við bresk fyrirtæki og bankastofnanir á að upplýsa breska sendiherrann á Íslandi um málið.

Ian Whitting, sendiherra Breta á Íslandi, hefur lýst því yfir að hann vilji fá slíkar upplýsingar beint til sín. Netfang sendiherrans er [email protected].

Þetta kemur fram á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins.