Jón Finnbogason, fyrrverandi forstjóri Byrs, hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs Íslandsbanka. Una Steinsdóttir er framkvæmdastjóri sviðsins.

Jón er lögmaður að mennt og hefur starfað á fjármálamarkaði frá árinu 1998. Síðustu þrjú ár hefur hann starfað hjá Byr sparisjóði og síðar Byr hf. Jón var áður sjóðsstjóri sérhæfðra skuldabréfasjóða á eignastýringasviði Kaupþings. Þá hefur hann verið formaður íþróttafélagsins Gerplu frá árinu 2006, að því er fram kemur í tilkynningu frá Íslandsbanka sem hefur fengið græna ljósið til að kaupa Byr.

Jón er giftur Lindu Björk Logadóttur og eiga þau fimm börn.