Í gær réð Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Bjarna Harðarson í starf upplýsingafulltrúa í ráðuneyti sínu.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá ráðuneytinu var Bjarni valinn úr hópi 29 umsækjenda.  Bjarni er bóksali og fyrrverandi alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn, ritstjóri og blaðamaður.