WOW air flaug sitt fyrsta flug til Edinborgar í gær. Flogið verður til Edinborgar tvisvar í viku, á miðvikudögum og sunnudögum út október.

„Við erum mjög ánægð með að bæta Edinborg við áfangastaði okkar sem nálgast nú þriðja tug. Þessi borg hefur heillað margan ferðamanninn í gegnum tíðina enda einkennist hún bæði af litríkri menningu og einkar gestrisnu fólki,“ segir Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri WOW air.

Edinborg er höfuðborg Skotlands og einn vinsælasti áfangastaður Bretlandseyja á eftir Lundúnum. Edinborg er mikil menningarborg en hún hefur vakið athygli fyrir allskyns menningu og listir.