Töluverð velta var með skuldabréf í dag eða um 15,5 milljarða króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA, GBI, hækkaði um 0,2% og hefur þá hækkað um 0,9% á einni viku.

Mest var veltan með óverðtryggð skuldabréf eða um 10,9 milljarða króna og lækkaði óverðtryggð skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMAxi, um 0,1% og stendur þá í stað frá upphafi vikunnar.

Velta með verðtryggð skuldabréf nam um 4,6 milljörðum króna. Verðtryggð skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMAi, hækkaði um 0,3% og hefur þá hækkað um 1,3% á einni viku.