Gistinætur á hótelum í desember síðastliðnum voru 58.800 og jukust um 10% frá desember 2007 þegar gistinætur voru 53.600.

Þá voru gistinætur á hótelum  fyrir síðasta ár 1.339.879 en voru 1.310.719 árið 2007 og fjölgar því um rúm 2% samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar þar sem tölurnar eru birtar í dag.

Í desember fjölgarði gistinóttum hlutfallslega mest á Austurlandi eða um 32% og á höfuðborgarsvæðinu um 13% miðað við desember 2007.

Á Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum var fjöldi gistinátta svipaður og í desember 2007 en á Norðurlandi fækkaði gistinóttum í desember um 25% miðað við desember 2007, eða úr 2.000 í 1.500.

Þess má geta að á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða hafa bæst við í gagnagrunn gistináttatalningar gögn frá tveimur hótelum fyrir desember mánuð. Jafnframt hefur eitt hótel bæst við á Austurlandi fyrir sama tímabil.

Sem fyrr segir fjölgaði gistinóttum á hótelum fyrir árið 2008 um rúm 2% milli ára. Fjölgun gistinátta varð á Suðurlandi um 13% og á Austurlandi um 7% milli ára. Á öðrum landsvæðum eru gistinætur svipaðar eða hafa dregist örlítið saman á milli ára.

Gistinóttum Íslendinga árið 2008 fækkar um rúm 2% frá árinu 2007 á meðan  gistinóttum útlendingar fjölgar um tæp 4% á milli ára.