Glitnir Fjármögnun hefur ákveðið að bjóða þeim viðskiptavinum sem eru með bílasamninga í erlendri mynt skilmálabreytingu sem felur í sér tímabundna lækkun á leigugreiðslu í 8 mánuði og lengingu á samningi um fjóra mánuði.

Lækkunin er um 50% miðað við fulla leigugreiðslu í janúar 2009 og verður greiðslan föst krónutala þá 8 mánuði sem um ræðir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Glitni en þar kemur fram að  hingað til hefur Glitnir Fjármögnun boðið viðskiptavinum sínum sem eru með bílasamninga í erlendri mynt að greiða eingöngu vexti af samningnum.

Þá kemur fram að þessi breyting er þeim sem eru að fá skilmálabreytingu í fyrsta skipti að kostnaðarlausu en  kostar kr. 2.900 fyrir þá sem eru að fá breytingu í annað sinn. Hægt verður að sækja um þessa skilmálabreytingu á heimasíðu Glitnis fjármögnunar frá og með þriðjudeginum 17. febrúar.

,,Það er ljóst að gríðarleg veiking krónunnar hefur haft afar neikvæð áhrif á marga af okkar viðskiptavinum,“ segir Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Glitnis fjármögnunar í tilkynningunni.

„Margir þeirra hafa orðið fyrir kjaraskerðingu vegna atvinnumissis, skertra launa eða lægra starfshlutfalls og hefur greiðslugeta þeirra því minnkað samfara því. Við höfum á síðustu mánuðum unnið að skilmálabreytingum fyrir fjölmarga viðskiptavini okkar. Með þessari lausn erum við að reyna að koma enn frekar til móts við þarfir þeirra.”