Greiningardeild Glitnis hefur lækkað verðmatsgengi sitt á Landsbankanum í 28 krónur á hlut úr 29 krónum á hlut.

"Verðmatsgengið er lítillega yfir gengi á markaði (26,5). Ráðlegging okkar til fjárfesta er að halda bréfum í félaginu horft til langs tíma. Markgengi (e. target price) er 30,0 en það er spá okkar um hvar gengi bréfa í félaginu standi að sex mánuðum liðnum.

Helstu ástæður fyrir lækkuðu verðmatsgengi eru aukin eiginfjárbinding og lækkun á forsendu um ávöxtun hlutabréfasafns," segir greiningardeildin.