FL Group hefur selt 43,1% eignarhlut sinn í Geysir Green Energy til Glitnis banka, Atorku Group, og fleiri aðila. Söluverðið er um 10,5 milljarðar króna og nemur áður bókfærður gengishagnaður FL Group um 3 milljörðum króna sem jafngildir um 40% hækkun á fjárfestingu í félaginu.

Gengið hefur verið frá sölu á erlendum fasteignasjóðum til Landic Property fyrir 20,6 milljarða króna, í samræmi við fyrirætlanir sem kynntar voru í desember sl.