Á fundi stjórnar Samtaka atvinnulífsins nýverið var Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf., kjörinn varaformaður SA. Grímur situr í stjórn SA fyrir hönd Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) ásamt því að eiga sæti í framkvæmdastjórn SA. Grímur hefur nokkur undanfarin ár sinnt trúnaðarstörfum fyrir SAF og SA. Vilmundur Jósefsson var áður varaformaður SA en hann gegnir nú formennsku í samtökunum