Upplýsingatæknifyrirtækið Sensa hefur ráðið til sín þrjá sérfræðinga, en það eru þeir Guðbjarni Guðmundsson, Sigurður H. Ólafsson og Björgvin Björgvinsson. Starfsmenn Sensa eru 120 talsins en starfsemi þess spannar allt frá rekstri, hýsingu og skýjalausnum til sérfræðiþjónustu og ráðgjafar.

Guðbjarni Guðmundsson hefur gengið til liðs við teymi Sensa í net- og öryggislausnum, en hann hefur undanfarin tuttugu ár starfað hjá Opnum Kerfum sem sérfræðingur og ráðgjafi í innleiðingum á net- og öryggislausnum fyrir stærri fyrirtæki og stofnanir. Þá sinnti hann samhliða ráðgjöf og var forstöðumaður Kjarnalausna síðustu fimm ár.

Guðbjarni er rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands og með CCIE gráðu frá Cisco eða Cisco Certified Internetworking Expert sem er eftirsótt í upplýsingatækniheiminum. Guðbjarni stundar crossfit af kappi en leggur líka stund á jeppaferðir sem og almenna fjallamennsku. Guðbjarni er kvæntur Ragnheiði Marteinsdóttur og eiga þau þrjú börn.

Sigurður H. Ólafsson hefur verið ráðinn í viðskiptaþróun Netapp hjá Sensa. Hlutverk Sigurðar verður að skapa nýjar lausnir og þjónustur úr lausnamengi Netapp með áherslu á samnýtingu gagna á milli skýjalausna og hefðbundinna gagnageymslna.  Sigurður styrkir hóp hjá Sensa sem einbeitir sér að lausnum er snúa að gagnaumsýslu fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Gögn fyrirtækja og meðhöndlun þeirra er lykilatriði í samkeppnishæfni fyrirtækja og er markmið Sensa að bjóða viðskiptavinum sínum hagkvæmar og virðisaukandi lausnir er snúa að því að virkja gögn til verðmætasköpunar.

Sigurður hefur undanfarin 25 ár sinnt ýmsum störfum hjá Origo hf., síðustu ár sem Lausnastjóri innviða. Sigurður er með sveinspróf í rafeindavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík og BA gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands með tölvunarfræði sem aukagrein. Sigurður er kvæntur Guðfinnu Hákonardóttur og eiga þau þrjú börn.

Björgvin Björgvinsson hefur verið ráðinn viðskiptastjóri hjá Sensa. Hlutverk Björgvins verður fyrst og fremst sala og sérhæfing í Microsoft 365 umhverfinu og skýjalausnum, ásamt almennum rekstrarlausnum fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Björgvin hefur undanfarin fjórtán ár starfað hjá Epli. Þar hefur hann gegnt ýmsum störfum m.a. á fyrirtækjasviði og gegnt hlutverki verslunarstjóra síðastliðin fimm ár. Þá hefur hann samhliða unnið sem vefstjóri og stofnað og rekið vefverslanir í gegnum tíðina.

Björgvin útskrifast í vor með MCSA og CCNA gráðu í kerfisstjórnun. Alls kyns tækni er ofarlega í huga hjá Björgvini en auk þess spilar hann á píanó, er liðtækur í matargerð auk þess að stunda útivist og líkamsrækt af kappi. Sambýliskona Björgvins er Hrafnhildur B. Þórsdóttir og á hann tvö börn.