Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir hefur verið ráðin deildarforseti tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík.

Fram kemur í tilkynningu frá skólanum að Guðrún, sem er dósent við HR og sviðsstjóri véla- og rafmagnssviðs, hafi starfað við tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík frá árinu 2008. Á árunum 2006 til 2008 var Guðrún dósent í varma og straumfræði við véla- og iðnaðarverkfræðiskor HÍ.

Sérsvið Guðrúnar er á sviði orkufrekra framleiðsluferla, varmafræði, varmaflutnings og streymis í orkuferlum, termískts rafgass og ljósboga.

Að lokinni BSc og MSc gráðum frá HÍ hélt Guðrún til Þrándheims í Noregi þaðan sem hún lauk doktorsgráðu í efnisverkfræði frá NTNU.

Guðrún hefur hlotið fjölda viðurkenninga og styrkja á sínu sviði undanfarin tuttugu ár. Jafnframt fræðimennsku og kennslu hefur Guðrún byggt upp öflug tengsl við atvinnulífið í rannsóknum og kennslu og situr meðal annars í stjórnum Verkfræðingafélags Íslands og Eðlisfræðifélags Íslands.