Stjórn Sementsverksmiðjunnar hf. á Akranesi hefur ákveðið að ráða Gunnar H. Sigurðsson sem framkvæmdastjóra fyrirtækisins frá og með 1. desember næstkomandi í stað Gylfa Þórðarsonar sem hafði tilkynnt að hann hyggðist láta af störfum fyrir lok ársins.

Gunnar Hermann er 49 ára véltæknifræðingur að mennt og hóf störf hjá fyrirtækinu í október 1981 sem viðhaldsstjóri.

Hann hefur um langt skeið verið deildarstjóri framleiðslu og viðhalds auk þess sem hann hefur meira og minna borið ábyrgð á flutningum og dreifingu síðustu misserin. Í frétt frá fyrirtækinu segir að Gylfi muni verða Gunnari til halds og trausts fram að miðjum desember.