Peningastefnunefnd hefur ákveðið að hækka meginvexti Seðlabankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1%. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bankans.

„Efnahagsbatinn var kröftugri á seinni hluta síðasta árs en áður var talið,“ segir í tilkynningu SÍ. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans, sem birt er í maíhefti Peningamála, eru horfur á liðlega 3% hagvexti í ár og yfir 5% hagvexti á næsta ári.

Nefndin segir að horfur hafi batnað frá fyrri spá bankans og vega þar þyngst vísbendingar um meiri bata innlendrar eftirspurnar. Atvinnuleysi hafi hjaðnað þótt það sé enn mikið. Því virðist slakinn í þjóðarbúskapnum vera minni og útlit sé fyrir að hann hverfi fyrr en áður var talið.

Verðbólgan meiri og þrálátari en spáð var

Framboðstruflanir vegna Covid farsóttarinnar hafa hækkað kostnað við að framleiða og dreifa vörum um allan heim og alþjóðlegt olíu- og hrávöruverð hefur einnig hækkað mikið undanfarið, en nefndin bendi þó að þessar hækkanir kunni að vera tímabundnar. Verðbólga hafi því reynst meiri og þrálátari en áður var spáð og mældist 4,6% í apríl .

„Verðbólguþrýstingur virðist almennur enda mælist undirliggjandi verðbólga svipuð og mæld verðbólga. Margt leggst þar á eitt eins og áhrif gengislækkunar krónunnar í fyrra og miklar hækkanir launa og húsnæðisverðs. Því er nauðsynlegt að hækka vexti bankans til þess að tryggja kjölfestu verðbólguvæntinga í verðbólgumarkmiðinu.“

„Peningastefnunefnd mun beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að tryggja að verðbólga hjaðni aftur í markmið innan ásættanlegs tíma,“ segir í lok tilkynningarinnar.