Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan febrúar 2013 er 118,7 stig (desember 2009=100) sem er hækkun um 2,3% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar í dag.

Verð á innlendu efni hækkaði um 2,2% (áhrif á vísitölu 0,9%) en verð á innfluttu efni hækkaði um 0,8% (0,2%). Vélar, flutningur og orkunotkun hækkuðu samtals um 6,0% (0,4%). Vinnuliðir hækkuðu um 2,9% (0,8%) vegna samningsbundinna hækkana sem tóku gildi 1. febrúar 2013. Vísitalan gildir í mars 2013.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,1%.