Hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík á fyrstu sex mánuðum ársins nam um 5.644 milljónum króna fyrir skatta. Hagnaður eftir skatta var 4.637 milljónum króna sem er aukning upp á 338,7% frá sama tímabili árið áður þegar hann nam 1.244,6 milljónum króna. Arðsemi eiginfjár var 63,8% sem er ein sú mesta frá stofnun sjóðsins segir í frétt til Kauphallarinnar.

Vaxtatekjur Sparisjóðsins námu á tímabilinu 2.216,9 milljónum króna. en það er 8,27% hækkun frá sama tímabili árið áður.  Vaxtagjöld hækkuðu um 326,1 milljónum króna á tímabilinu og námu 1.866,1 milljónum króna.

Hreinar vaxtatekjur námu því 350,7 milljónum kr. samanborið við 507,5 milljónir kr. á sama tímabili árið áður.


Kostnaðarhlutfall á tímabilinu var 10,1% á móti 27,8% á sama tíma árið áður.

Í lok tímabilsins var niðurstöðutala efnahagsreiknings 55.898,5 milljónir kr. og  hafði hún hækkað um 10.888,4 mkr. eða 24,2% á tímabilinu.

Eigið fé Sparisjóðsins í lok júní nam 14.167,7 m.kr. og hefur eigið fé aukist um 5.449,9 m.kr. eða 62,52%. Inni í því er stofnfjáraukning upp á 700 m. kr. að nafnvirði.

Eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins samkvæmt CAD-reglum er 17,3% en var 10,45% á sama tíma árið áður.

Áætlanir benda til að afkoman verði góð á árinu 2007.

Í lok tímabilsins var stofnfé 1.800 milljónir að nafnvirði og voru  stofnfjáraðilar 724 talsins.

Árshlutareikningur samstæðu Sparisjóðsins í Keflavík er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) eins og þeir hafa verið staðfestir af Evrópusambandinu og í samræmi við IAS 34 "Interim Financial Reporting". Þetta er fyrsti árshlutareikningur sjóðsins sem gerður er samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum og hefur alþjóðlega reikningsskilastaðlinum IFRS 1, Innleiðing alþjóðlegra reikningsskilastaðla, verið beitt við gerð hans.


Að sögn Geirmundar Kristinssonar þá hefur rekstur Sparisjóðsins í Keflavík gengið vonum framar. Þetta er langmesti hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík á einum árshelmingi og er hagnaður tímabilsins rúmlega fjórfaldur miðað við sama tímabil árið áður. Arðsemi eiginfjár var 63,8% sem er ein sú mesta frá stofnun sjóðsins. Hagnaður síðastliðinna ára hefur verið notaður til uppbygginar á ýmsum tekjusviðum sjóðsins sem mun koma sparisjóðnum til góða í framtíðinni.

Í apríl var farið í útboð á nýju stofnfé að upphæð 700 m. kr. að nafnvirði og tókst það mjög vel þar sem umframeftirspurn var eftir hinu nýja stofnfé. Þá hefur stjórn Sparisjóðsins í Keflavík ákveðið að bjóða út nýtt stofnfé að nafnvirði 1.000 m. kr. og fer útboðið fram í september n.k. Stofnfjármarkaður hefur verið með stofnfjárbréf hjá Viðskiptastofu SPKEF frá því í byrjun ársins og hefur hann gengið framar vonum og hafa stofnfjáraðilar aldrei verið fleiri en nú.

Höfuðstöðvar Sparisjóðsins og Viðskiptastofu Spkef eru í Keflavík en einnig rekur sparisjóðurinn útibú og afgreiðslur á eftirtöldum stöðum: Njarðvík, Garði, Sandgerði, Grindavík, Vogum og Ólafsvík. Sparisjóðurinn opnar afgreiðslu í Reykjavík á síðari hluta ársins. Starfsmenn Sparisjóðsins eru 98 talsins..