Mikið líf og fjör á skuldabréfamarkaði má að öllum líkindum að stærstum hluta rekja til stýrivaxtaákvörðunar Seðlabankans sem kynnt var í gær.

Þetta er mat Hagfræðideildar Landsbankans en metvelta var á skuldabréfamarkaði í dag, er skuldabréf að verðmæti 79,1 milljarði króna skiptu um hendur og bætti veltumet síðustu viku um 600 milljónir króna.

Í Hagsjá, vefriti Hagfræðideildar Landsbankans, kemur fram að þetta séu tvær veltumestu vikurnar síðan um september/október í fyrra, þ.e. rétt fyrir bankahrunið.

Eins og kunnugt er ákvað Seðlabankinn í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum í 12%, en Hagfræðideild Landsbankans telur jafnframt að bankinn hafi sent út sterk skilaboð um að svigrúm til að auka slaka í peningamálum væri afar lítið og viðbúið að vextir þyrftu að hækka, nema ef hægja myndi umtalsvert á verðbólgu og gengið héldist stöðugt eða styrktist.

Fram kemur að ávöxtunarkrafa allra ríkisbréfa og íbúðabréfa hélt áfram að hækka töluvert í vikunni. Hækkunin á ávöxtunarkröfu íbúðabréfa var á bilinu 4 til 16 punktar á sama tíma en það jafngildir um 0,2-2,1% verðlækkun.

Á sama tíma hækkaði ávöxtunarkrafa ríkisbréfa um 21-62 punkta en það skilar sér í um 0,2-3,7% verðlækkun.

„Verðlækkunin í ríkisbréfum var langmest í lengri endanum en það bendir til þess að markaðurinn hafi verið að aðlaga væntingar sínar að því að stýrivöxtum verði haldið háum lengur en áður var talið,“ segir í Hagsjá.