Til stóð að bræðurnir Robert og Vincent Tchenguiz yrðu gestir á ráðstefnu um fasteignaviðskipti í Cannes sem nú er að hefjast. Þeir voru hins vegar handteknir í morgun í stórri aðgerð SFO í Bretlandi og embætti sérstaks saksóknara á Íslandi.

Blaðamaður Financial Times (FT), sem staddur er í Cannes, segir að um fátt sé meira rætt á meðal gesta á börunum í Cannes en handtökurnar í morgun. Vincent ætlaði að blása til veislu í snekkju sinni á morgun, sem ber nafnið Veni, Vidi, Vici. Óvíst er hvort af henni verður.

Um 18 þúsund manns voru skráðir sem gestir á ráðstefnunni.