Haraldur Þór Stefánsson hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Toyota Kópavogi, stærsta söluaðila Toyota á Íslandi. Haraldur hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra sölusviðs Toyota á Íslandi um árabil. Um leið tekur Kristinn G. Bjarnason, sem leitt hefur markaðsstarf Toyota undanfarin þrjú ár, við stöðu framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Toyota á Íslandi.

Í tilkynningu kemur fram að breytingarnar, sem tóku gildi 2. janúar síðastliðinn, eru liður í því að ljúka aðskilnaði milli heildsölu og smásölu bifreiða frá Toyota, til að auka skilvirkni og bæta enn frekar þjónustu á hverjum sölustað fyrir sig.

Forstjóri Toyota á Íslandi er Úlfar Steindórsson.