Heiða Kristín Helgadóttir, sem verið hefur stjórnarformaður Bjartrar framtíðar frá stofnun flokksins, hefur ákveðið að láta af störfum fyrir Bjarta framtíð í upphafi næsta árs. Frá þessu greinir hún í stöðuuppfærslu á fasbókarsíðu sinni.

„Á síðastliðnum fimm árum hef ég átt þeirri gæfu að fagna að eiga stóran þátt í því að búa til tvo stönduga stjórnmálaflokka, Besta flokkinn og Bjarta framtíð, og þannig stuðlað að tímabærum breytingum sem ég vona innilega að munu hafa jákvæð áhrif til lengri tíma,“ segir Heiða Kristín. Á þessum tímapunkti finnst henni rétt að sleppa takinu, hleypa öðrum að og freista þess að hafa áhrif á samfélagið með öðrum hætti. Því hafi hún ákveðið að láta af stjórnarformennsku í Bjartri framtíð í upphafi nýs árs og hvíla dagleg afskipti af stjórnmálum um sinn.

„Ég er sátt og stolt af því sem ég hef áorkað, en á sama tíma meðvituð um að þörfin fyrir að opna samfélagið upp og færa það nær nútímanum er ótvíræð. Ég hlakka til að takast á við það verkefni frá nýjum sjónarhól á komandi árum,“ segir hún að lokum.