Sturla Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Fasteignafélags Íslands, sem á Eignarhaldsfélag Smáralindar og heyrir undir Regin ehf. og Landsbankann, hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Smáralindar af Henning Frey Henningssyni.

Gerðist þetta fyrir síðustu helgi. Mun Sturla einnig taka við stöðu framkvæmdastjóra Eignarhaldsfélags Smáralindar af Helga Magnússyni sem lætur af störfum á næstunni, að því er fram kemur í samtali við Sturlu í Jólagjafahandbók Viðskiptablaðsins sem fylgir Viðskiptablaðinu í dag.