Fjórum fjárfestum hefur verið boðið að halda áfram í næsta hluta söluferlisins á hlutafé í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýja Glitni.

Eftir því sem Viðskiptablaðið kemst næst er hópur Vilhjálms Bjarnasonar meðal þessara fjögurra aðila.

Samkvæmt skilyrðum Glitnis ber þessum fjórum fjárfestum að leggja fram skuldbindandi tilboð eigi síðar en 17. febrúar nk. Söluferlið er á áætlun, segir í tilkynningunni, og gert er ráð fyrir að því ljúki þann 19. febrúar nk.