Hlutabréfamarkaðir lækkuðu í Evrópu í dag en að sögn Reuters fréttastofunnar má helst rekja lækkanir dagsins til lækkandi hrávöruverðs.

FTSE 300 vísitalan, sem mælir helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu, lækkaði um 0,3% en hafði þó í gegnum daginn sveiflast nokkuð yfir og undir núllið.

Námufyrirtækið Xstrata lækkaði um 12,4% í dag og hafði neikvæð áhrif á önnur námufélög svo og hrávöruframleiðendur. Þannig lækkaði Antofagasta um 6,3% og Anglo American um 5,8% svo dæmi séu tekin.

Með lækkandi olíuverð lækkuðu BP og Shell um 1,4% og 4,4%.

Í Lundúnum lækkaði FTSE 100 vísitalan um 1%, í Amsterdam lækkaði AEX vísitalan um 1,5% og í Frankfurt lækkaði DAX vísitalan um 2%.

Í París lækkaði CAC 40 vísitalan um 1,2% en í Sviss hækkaði SMI vísitalan aftur á móti um 0,3%.

Í Kaupmannahöfn hækkaði OMXC vísitalan um 1,6% en í Stokkhólmi lækkaði OMXS vísitalan um 0,1% og í Osló lækkaði OBX vísitalan um 0,4%.