HS Orka hefur keypt hlut í orkufyrirtækinu Vesturverki sem vinnur að virkjun Hvalár í Ófeigsfirði á Ströndum samkvæmt fréttatilkynningu. Með samningnum gerist HS Orka meirihlutaeigandi í Vesturverki.

Hvalárvirkjun er í nýtingarflokki rammaáætlunar ríkisstjórnarinnar um nýtingu orkuauðlinda Íslands sem og á aðalskipulagi Árneshrepps. Áætluð stærð Hvalárvirkjunar er um 50 MW og orkugeta upp á 320 GWh á ári.

„Samningurinn við HS Orku gerir okkur kleift að halda áfram rannsóknum og þróun Hvalárvirkjunar. Virkjunin mun hafa víðtæk og verulega jákvæð áhrif á atvinnulíf á Vestfjörðum,“ segir Gunnar Gaukur Magnússon, framkvæmdastjóri Vesturverks.

Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, tekur í sama streng. „Orkuöryggi á Vestfjörðum hefur verið eitt helsta baráttumál íbúa þar um langt skeið enda hafa orkumál staðið atvinnulífinu fyrir þrifum. Við hjá HS Orku þekkjum það af eigin reynslu frá Suðurnesjum hvað orkuöryggi skiptir miklu máli og við finnum fyrir miklum stuðningi íbúa og sveitarfélaga á Vestfjörðum varðandi framgang verkefnisins.“