HS Orka hefur stefnt Orkuveitu Reykjavíkur, OR, til aðildar að deilu um túlkun á sex ára gömlum orkusölusamningi við Norðurál.

Í tilkynningu um málið frá OR kemur fram að í síðustu viku, 16. desember, hafi HS Orka vísað til gerðardóms deilu um túlkun orkusölusamnings sem HS og Orkuveita Reykjavíkur gerðu við Norðurál á Grundartanga árið 2005.

Deilan snýst um það orkumagn sem Norðuráli ber að kaupa frá HS samkvæmt orkusölusamningnum til notkunar í álverinu á Grundartanga.

Fram kemur í tilkynningunni að þótt ekki sé um deilu að ræða milli HS og OR þá varð HS að krefjast aðildar OR að deilunni þar sem um sameiginlegan orkusölusamning er að ræða. Gerðardómsmálið verður rekið í samræmi við reglur Gerðardómsstofnun Viðskiptaráðsins í Stokkhólmi. Gerðardómur hefur ekki verið skipaður og áætlun um framgang málsins ekki verið ákveðin, að því er fram kemur í tilkynningunni.