Samkomulag hefur náðst á milli stjórnar Alfesca og Q Iceland Holding ehf. (áður ELL 162 hf.) fjárfestingarfélags í eigu hans hátignar Sheikh Mohamed Bin Khalifa Al-Thani, um að falla frá fyrirhugaðri áskrift að 850.000.000 hlutum í Alfesca í ljósi hins óvenjulega fjárhagslega óróa og þeirrar óvissu sem ríkir á hinum íslenska fjármálamarkaði og mikillar veikingar íslensku krónunnar, þar til markaðurinn verður stöðugri, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Í bréfi til stjórnar Alfesca hefur hans hátign ítrekað stuðning sinn og áhuga á Alfesca sem langtímafjárfestingu og staðfest vilja sinn til að halda áfram að vinna með félaginu verði tækifæri til þess.

Í ljósi ríkjandi aðstæðna hefur stjórnin ákveðið að fresta aðalfundi félagsins, sem átti að halda mánudaginn 20. október n.k., til þriðjudagsins 18. nóvember n.k.

Nánari upplýsingar varðandi fundinn verða kynntar þegar fram líða stundir, segir í tilkynningunni.