Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,3% í dag og stóð við lok markaða í 640 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,4% í gær en hóf að lækka við opnun í morgun.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga. Aðeins tvö félög lækkuðu í dag, Bakkavör og Össur og draga þau þar með Úrvalsvísitöluna niður.

Velta með hlutabréf var um 83 milljónir króna en þar af voru rúmar 46 milljónir króna með bréf í Össur.

Þá var velta fyrir tæpar 14 milljónir króna með bréf í Century Aluminum.