Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,7% og er 4.482 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Þetta var líflegur fréttadagur. Eimskipafélagið [ HFEIM ] tilkynnti um í morgun að það hafi afskrifað Innovate Holding með öllu en bókfært virði þess var 74,1 milljónir evra eða 8,8 milljarðar króna. Afskriftin nemur 18% af eigin fé félagsins. Eimskipafélagið lækkaði um 12,7% í dag. Það sem af er ári nemur lækkunin 50%.

Auk þess keypti Gertner-fjölskyldan á Bretlandi sem á ættir sínar að rekja til Venesúela rúmlega 2% hlut í Kaupþingi [ KAUP ] sem skýrir hin miklu viðskipti með bréf Kaupþings í dag eða upp á um 15,6 milljarða króna. Stærstu viðskipti dagsins námu 13,9 milljörðum króna.

Danska vísitalan OMXC lækkaði um 0,9%, norska vísitalan OBX lækkaði um 1% og sænska vísitalan OMXS lækkaði um 1,3%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.