Íbúðalánasjóði verður heimilt að leigja eða fela öðrum að annast leigu húsnæðis sem sjóðurinn hefur leyst til sín á nauðungarsölu.

Þetta kemur fram á vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins en Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, mælti í dag á Alþingi fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um húsnæðismál á Alþingi.

Þá verður samkvæmt frumvarpinu heimilt að lengja umtalsvert lánstíma lána vegna greiðsluerfiðleika.

Þau úrræði sem lögð eru til í frumvarpinu eru liður í umfangsmiklum aðgerðum til að mæta fólki í greiðsluvanda sem unnið hefur verið að í samvinnu félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Íbúðalánasjóðs að undanförnu.

Mörgum aðgerðum í þessu skyni hefur þegar verið hrint í framkvæmd með reglugerðarbreytingum og breytingum á verklagi Íbúðalánasjóðs.

„Heimild Íbúðalánasjóðs til þess leigja eða fela öðrum að annast leigumiðlun íbúðarhúsnæðis er lögð til með það að meginmarkmiði að gera leigjendum íbúða sem sjóðurinn hefur eignast á nauðungaruppboði vegna greiðsluerfiðleika leigufélaganna, eða eigendum íbúða sem hafa misst þær vegna greiðsluerfiðleika, kleift að búa áfram í íbúðarhúsnæðinu í tiltekinn tíma gegn leigu. Fólki sé þannig forðað frá því að þurfa að hrekjast úr húsnæði sínu með litlum fyrirvara og án þess að eiga í önnur hús að venda“, sagði Jóhanna þegar hún mælti fyrir frumvarpinu.

Hægt er að hlusta á umræðurnar á vef Alþingis og nálgast frumvarpið á meðfylgjandi slóð: http://www.felagsmalaraduneyti.is/frettir/frettatilkynningar/nr/4087