Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 351,5 stig í febrúar sl. og hækkaði um 0,2% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur nú hækkað um 5,8% á milli ára en stendur í stað frá áramótum. Vísitalan fór yfir 350 stig í nóvember sl., sem var þá í fyrsta skipti síðan í ágúst 2008.

Á myndinni hér að neðan má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin fimm ár. Eins og sjá má mælist íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu nú á svipuðu róli og það var sumarið 2008, rétt fyrir hrun fjármálakerfisins haustið 2008. Vísitalan náði hámarki í ársbyrjun 2008 en hefur nú síðan þá lækkað um 1,7% föstu verðlagi. Mest lækkaði hún um 15,5% að raunvirði frá hámarkinu en það var í desember 2009. Síðan þá hefur íbúðaverð hækkað um 16,4%.

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 0,4% en síðastliðna 6 mánuði hefur hún hækkað um 2,3%.

© vb.is (vb.is)