Icelandair Group hf (ICEAIR) hefur gert samning við Saga Fjárfestingarbanka og Landsbankann (NBI) um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins sem skráð eru í Kauphöllinni.

Samningurinn við Saga Fjárfestingarbanka tekur gildi frá og með 10. janúar og er hann ótímabundinn en uppsegjanlegur með eins mánaðar fyrirvara. Samningur við Landsbankann tekur gildi 11. janúar.

Í tilkynningu til Kauphallar segir að tilgangur samninganna sé að efla viðskipti með hlutabréf Icelandair Group í Kauphöllinni, í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.

„Saga Fjárfestingarbanki mun daglega setja fram, í eigin reikning, kaup- og sölutilboð í hlutafé ICEAIR, að lágmarki kr. 1.000.000 að nafnvirði á gengi sem Saga Fjárfestingarbanki ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3,0%. Tilboðin skulu endurnýjuð innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Hámarksfjárhæð viðskipta dag hvern sem Saga Fjárfestingarbanki er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 15.000.000,- að nafnvirði,“ segir í tilkynningu til Kauphallar um samning við Saga Fjárfestingarbanka.

„Landsbankinn mun daglega setja fram, í eigin reikning, kaup- og sölutilboð í hlutafé ICEAIR, að lágmarki kr. 2.000.000 að nafnvirði á gengi sem Landsbankinn ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Tilboðin skulu endurnýjuð innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Breytist verð ICEAIR innan dagsins um meira en 10% er Landsbankanum heimilt að tvöfalda hámarks mun á kaup- og sölutilboðum það sem eftir er dagsins. Hámarksfjárhæð viðskipta dag hvern sem Landsbankinn er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 80.000.000,- að markaðsvirði,“ segir um samninginn við Landsbankann.