Icelandair og Turkish Airlines undirrituðu í morgun samstarfssamning. Með samningnum munu flugfélögin geta boðið viðskiptavinum sínum þægilegar tengingar á milli leiðakerfa sinna og þannig aukið úrval tengimöguleika.

„Samningurinn stóreykur framboð á þægilegum tengingum þar sem viðskiptavinir ferðast á einum farmiða og innrita farangurinn alla leið á lokaáfangastað,“ segir í tilkynningu Icelandair.

Farþegar Icelandair frá Norður-Ameríku og Íslandi geta ferðast í austurátt með Turkish Airlines til Istanbul og farþegar Turkish Airlines geta ferðast frá fjölda áfangastaða meðal annars í Asíu og Miðausturlöndum í vesturátt með leiðakerfi Icelandair til Íslands og Kanada.

Turkish Airlines var stofnað árið 1933 með fimm flugvélar í flota sínum. Nú er félagið hluti af Star Alliance samstarfinu og flotinn samanstendur af 416 flugvélum. Félagið flýgur til 344 áfangastaða í 129 löndum.

„Það er spennandi að tilkynna Turkish Airlines, það flugfélag sem flýgur til flestra landa í heiminum, sem nýjasta samstarfsflugfélag okkar. Okkar stefna er að gera samstarfssamninga við flugfélög sem veita góða þjónustu og opna ný og spennandi ferðatækifæri. Með þessum nýja samningi tengjum við á milli leiðakerfa flugfélaganna og stóraukum ferðamöguleika fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

Það er ánægjulegt að undirrita þennan samstarfssamning við Icelandair. Með samningnum viljum við auka úrval ferðamöguleika fyrir viðskiptavini okkar. Einnig erum við ánægð með að þessi samstarfssamningur við Icelandair mun skila miklum viðskiptalegum ávinningi til beggja flugfélaga,“ er haft eftir Bilal Ekşi, forstjóra Turkish Airlines.

© Aðsend mynd (AÐSEND)