Í tilkynningu frá Seðlabankanum kemur fram að litið er svo á að samningsgerð (Letter of Intent) á milli ríkisstjórnar Íslands og sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sé enn trúnaðarmál.

Þá kemur fram að nítjándi liður samningsgerðarinnar sér þó eðli málsins samkvæmt ekki lengur trúnaðarmál.

„Ráðherrar úr ríkisstjórn hafa undrast vaxtahækkun í 18% og hafa jafnframt sagt að ekkert ákvæði um slíka gjörð sé í samningsgerðinni,“ segir í tilkynningu Seðlabankans.

Þá segir í tilkynningunni að í nítjánda lið samningsgerðarinnar segi: „To raise the policy interest rate to 18 percent.“