Ingólfur Helgason, forstjóri Kaupþings banka á Íslandi, keypti 500.000 hluti í bankanum í dag á genginu 750 krónur á hlut, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar. Kaupverðið er því um 375 milljónir króna.

Ingólfur Helgason á 3.300.075 hluti í bankanum eftir viðskiptin. Miðað við kaupgengi dagsins í dag er verðmæti eignar hans í Kaupþingi banka 2,47 milljarðar króna.

Ingólfur á nú kauprétt að 60.000 hlutum í bankanum. Aðilar fjárhagslega tengdir Ingólfi eiga enga hluti í bankanum.