Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, tilkynnti á blaðamannafundi í morgun að Ísland hefði verið sýknað í morgun í Icesave-málinu. Hann þakkaði jafnframt þeim grasrótarsamtökum sem börðust fyrir því að fara með málið fyrir dóm.

Tim Ward, aðalmálflutningsmaður Íslands, sagði niðurstöðuna vera endanlega.