Þrátt fyrir umrót í viðskiptalífinu undanfarið ár hækkar Ísland á lista Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) um samkeppnishæfni þjóða úr 23. sæti 2007-2008 í 20. sæti 2008-2009.

Sem fyrr tróna Bandaríkjamenn í efsta sætinu en næst koma Sviss, Danmörk, Svíþjóð og Singapúr. Bretland fellur af topp tíu listanum vegna veikingar markaða þar í landi og er núna í 12. sæti. Vísitala World Economic Forum um samkeppnishæfni er virtur mælikvarði á efnahagslíf 134 þjóða víða um heim.

Samkeppnishæfnivísitala World Economic byggist á opinberum tölfræðiupplýsingum og viðhorfskönnun sem gerð er meðal stjórnenda í atvinnulífi 134 landa. Nýsköpunarmiðstöð Íslands er samstarfsaðili Alþjóðaefnahagsráðsins á Íslandi og sá um framkvæmd könnunarinnar síðastliðið vor.

Styrkleikar Íslands felast meðal annars í sterkum stofnunum (6. sæti), heilsu og grunnmenntun (2. sæti), framhaldsmenntun (4. sæti), tækni (6. sæti) og skilvirkni vinnumarkaðarins (6. sæti), en veikleikar Íslands eru breyturnar þjóðhagslegur stöðugleiki (56. sæti) og markaðsstærð (118. sæti). Í skýrslu World Economic Forum kemur fram að aðgangur að fjármögnun og verðbólga valda mestum vandkvæðum í viðskiptum á Íslandi.

„Stefnumótendur standa andspænis hækkandi matvæla- og olíuverði, alþjóðlegri fjármálakreppu og kólnun í helstu hagkerfum heimsins með tilheyrandi áskorunum. Ójafnvægi sem nú ríkir undirstrikar mikilvægi þess að efnahagsumhverfið styðji við samkeppnishæfni til að hjálpa löndum við að standa storminn af sér og tryggja frammistöðu hagkerfisins til framtíðar,“ segir Xavier Sala-i-Martin, prófessor í hagfræði við Columbia í Bandaríkjunum og meðhöfundur Global Competitiveness Report þar sem vísitalan er birt, en Sala-i-Martin kom hingað til lands og fjallaði um samkeppnishæfni á vordögum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.